Ísland í Eyjahafinu
Where to buy
Amazon’s price changes daily, so the most accurate place to see it is there, at the moment you buy.
View on AmazonAbout the book
Í sjálfstæðisbaráttunni þurftu Íslendingar að ná máli sem fullgild menningarþjóð. Þeir litu þá ekki síst til sögufrægra þjóða eins og Forn-Grikkja um fyrirmyndir. Sigurður Guðmundsson málari setti á svið atriði úr eddukvæðum og fornsögum sem sýndu hetjur í hellenskum stíl. Benedikt Gröndal blandaði saman grískum og íslenskum minnum í skrifum sínum og félagar í Kvöldfélaginu æfðu klassíska mælskulist í kappræðum um þjóðmál. Íslendingar lærðu einnig af öðrum þjóðum að lofsyngja landið í ættjarðarljóðum sem urðu að æðstu tjáningu íslensks þjóðernis. Þannig reynist hið þjóðlega oft vera af alþjóðlegum rótum runnið. Í bókinni er fjallað um þessa og aðra þætti í menningarviðleitni Íslendinga frá 18. og fram á 20. öld. Sveinn Yngvi Egilsson er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.
Book details
- Year
- 2019
- Language
- ice
- Publisher
- Hid íslenska bókmenntafélag
- Editions
- 1
- Pages
- 243
- ISBN
- 9789935502100
Data source: Wikidata