booktheque

Korngult hár, grá augu

Sjón · 2019

Where to buy

Amazon’s price changes daily, so the most accurate place to see it is there, at the moment you buy.

View on Amazon

About the book

Gunnar Kampen er ungur Reykvíkingur, verslunarskólagenginn og vel settur í lífinu, áhugasamur um menn og málefni innan lands sem utan. Hann á ástríka móður og tvær systur sem hafa hampað honum frá barnsaldri og sjálfur er hann umhyggjusamur bróðir og sonur. Vorið 1958 stofnar hann andgyðinglegan stjórnmálaflokk þjóðernissinna í Vesturbænum og tekur af kappi að leggja sitt af mörkum til ört stækkandi heimssamtaka nýnasista. Í texta sem sveiflast frá ljóðrænum bernskumyndum til skuggalegra hugrenninga skoðar Sjón lífshlaup sögupersónu sinnar eins og honum einum er lagið. Um leið er þeirri spurningu velt upp hvort Gunnar Kampen sé eins einstakur og virðist við fyrstu sýn. Skáldsagan?Korngult hár, grá augu? er áleitið og meistaralega vel skrifað verk eftir einn af okkar helstu höfundum. Sjón er skáldsagnahöfundur, ljóðskáld og textasmiður. Hann hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar á ferli sínum, meðal annars Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2005 fyrir?Skugga-Baldur? og Íslensku bókmenntaverðlaunin 2013 fyrir?Mánastein? drenginn sem aldrei var til?

Book details

Year
2019
Language
ice
Publisher
JPV Forlag
Editions
1
Pages
117
ISBN
9789935119445

Data source: Wikidata

More by Sjón